Sje eg að sól er
sigin í æginn,
get eg neinn jarðhlut
greint frá öðrum;
viðverandi allt
víkur mjer úr sýn,
líta verð eg í auðn
umliðnu fyllta.
Er þar allt ómerkt,
ómerkjanlegt;
skína smáblettir
og skína fagurt:
það eru merkismenn
til moldar hnignir,
sem blika af himni
á buri sína.
Hver er meyjar ásýnd,
er svo mjúkt lygnir augum
og mænir þeim á smáblys,
er á móti blakta?
það er hún Saga,
er seggja minning
sjálf gefur næring
og nærist á.
Fagurt þjóta vendir
fjöl-litaðir
og bera bragandi
blossa of himin:
þeysir þar heiður
hara frá norðri;
þaðan bera nafn
norðurljósin.