Freyjukettirnir(Fjöln. V, 5–6.)Þú, sem kærleika kveikir magn,kvöldstjörnu drottning hýr!þinn geislaríka gullinvagn,þar glansandi þú býr,:|: fegurstu draga dýr, :|:þeir sættmalandi, mjallahvítu kettir.Ei draga þeir þó ætíð vagnhjá ástar blíðri dís,af þeim sjer meira gaman og gagnhin gullinhærða kýs::|: þeir veiða menn, ei mýs, :|:og optast sendir út hún þá til veiða.Heims katta temja hnykki sjerhimindýr veiðum á,launsátra þeirra listin erþó langtum æðri að sjá;:|: þeir meyjum hýrast hjá :|:og undir þeirra augnasteinum liggja.Þó frá launsátri löngum þvíþeir læsi margan hal,sig þessum veiðum sjálfir íþeir sýna kattaval,:|: blíðir með mjúkast mal :|:þeir særa ei neinn, er sjálfur vill það eigi.Því mann þeir stökkva engan á,sem ei þeim horfir mót,í augun þjóta augum fráog annað snerta ei hót;:|: líttu ekki í augu á snót! :|:því kettir Freyju kúra þar undir steinum.Þó færri geti halir um heimtil hróss það talið sjer,að komizt hafi frá köttum þeimklaklaust og ósárir,:|: það minnkun ætíð er :|:úr manni að gjörast músin Freyjukatta.