Þú angraðir mig áðan
með orðum þínum, Sigrún!
Eg bað þig aptur mig hitta,
ef andaðist þú fyrri:
kvaðst þú ei trúa að kalda
eg kyssa þig vildi,
nje hjúpaða hvítbleika
þig höndum um spenna.
Mín trúir þá ei meyja
að muni eg sjer unna,
ef hún eigi trúir
eg unni sjer fölri:
þínar það víst eru varir,
þó verði þær kaldar;
kinnar eg sje þær sömu,
þó sjái eg þær hvítar.
Kyssir ei á köldum
kalda mjöllu vetri
röðull, jafnt sem rauðar
rósir á sumrum?
Hvít er hreinust lilja,
hvít ertu sjálf sem mjöllin,
muntu þá miður skarta
þó munnur og kinnar hvítni?
Þó heimsdvalar dreyrinn
deyi þjer af vörum,
blærinn þær blíðlega skreytir
blásala eilífðar.
Engilhvítt formið hið fagra
finnast mun óskert kinna,
jafnfrítt og jafngott rauðu,
þó jarðblysin slokkni.
Mærin mín hin skæra!
mig ei láttu því einan,
mjer þó að farir þú fyrri
til friðsala himna:
kom þú þegar á köldu
kólgur ganga hausti
og um miðnætti máni
í mökkva sig hylur.
Mun þá fölur máni
af meðaumkvan bregða
blæju sinni, svo bjarta
eg brosa þig sjái.
Farðu þá, mín fagra,
fljótlega mjer að bólstri
og hendi hvítri og mjúkri
mig hóglega snertu!
Svo, þegar bregð eg blundi
og breiði faðm þjer móti,
snjóköldum barmi snúðu
snarlega mjer að hjarta!
Fast kreistu brjóst mjer að brjósti
og bíddu unz máttu lausan
fá mig úr líkams fjötrum,
svo fylgja þjer megi eg.
* * *
Glöð skulum bæði við brott síðan halda
brennandi í faðmlögum loptvegu kalda
á gullreiðum norðljósa þjóta um þá.
Væn svo þá smáblys í vindheimum glansa
um vetrarbraut skulum í tunglsljósi dansa
og snjóskýja bólstrunum blunda svo á!